VEIÐIKORT
|
St.Rv. býður félagsmönnum sínum að kaupa Veiðikortið á skrifstofu félagsins og á orlofsvef félagsins. Nánari upplýsingar um veiðistaði og fleira má finna á www.veidikortid.is bæði á íslensku og ensku. |
![]() |
ÚTILEGUKORT
|
St.Rv. býður félagsmönnum sínum að kaupa Útilegukortið á skrifstofu félagsins og á orlofsvef. Útilegukortið gildir á fjölda tjaldstæða á landinu og veitir tveimur fullorðnum og fjórum börnum undir 16 ára aldri, fría gistingu á tjaldsvæðum samstarfsaðila Útilegukortsins. Þetta gildir eins lengi og tjaldsvæðin eru opin og engin takmörk eru fyrir því hve oft má koma á hvert tjaldsvæði, en einungis má gista í fjórar nætur samfellt í hvert skipti. Allar nánari upplýsingar um kortið og tjaldsvæðin má finna á vef Útilegukorsins. http://www.utilegukortid.is |
|
Öllum félagsmönnum í St.Rv. mökum þeirra og börnum upp að 16 ára aldri, er heimill aðgangur, án endurgjalds, að tjaldstæðum í landi Þórisstaða í Svínadal, auk veiði í eftirtöldum vötnum: Geitabergsvatni, Þórisstaðavatni og Eyrarvatni þó er undanskilið svæði K.F.U.M -manna sunnanvert við Eyrarvatn auk ár-stubbana milli vatnanna.
Veiðitímabil er: 1. apríl – 25. september 2012
Veiðitími er frá kl. 7:00 til 22:00 til og með 20. ágúst. Frá 21. ágúst er veiðitíminn frá kl. 7:00 til 21:00. Þeir sem nota þessa aðstöðu þurfa að geta staðfest að þér séu félagsmenn í St.Rv. með vinnutímabókinni eða félagsskírteini.