Orlofspunktar
Orlofspunktar fyrr og nú:
- Félagsmenn áunnu sér 12 orlofspunkta á ári samkvæmt upplýsingum um starfsaldur frá launagreiðendum fyrir upptöku kerfisins og dregnir frá punktar fyrir úthlutanir sl. 8 ár.
- Með nýju kerfi verða punktar þannig að einstaklingar fá 1 punkt fyrir hvern unninn mánuð.
- Punktastaða er uppfærð árlega áður en páskaúthlutun fer fram.
- Punktar eru ekki notaðir sem greiðsla fyrir leigu heldur stýra því hverjir eru í forgangi á úthlutunartímum. Þeir sem eiga flesta punkta ganga fyrir um hús í úthlutun.
Punktar og úthlutanir um sumar/páska – félagsmaður notar punkta sína:
- 0 punktur: Hvalfjarðargöng.
- 1 punktur: Útilegukortið og Veiðikortið
- 2 punktar: Hótelmiði.
- 10 punktar: Gjafabréf
- 20 punktar: Sumarhús eða íbúð fyrir tímabilið páskar og 13/5-27/5 og 19/8.-2/9 2011.
- 40 punktar: Sumarhús eða íbúð fyrir tímabilið 27/5-19/8 2011.