
élagsmönnum bjóðast niðurgreiddir miðar á Fosshótelin fyrir árið 2010, þeir eru afgreiddir á skrifstofu félagsins.
Hver miði kostar 6.000,- og gildir fyrir tveggja manna herbergi með morgunverði, en aukagjöld er eftirfarandi:
Aukagjald greiðist af gesti í gestamóttöku.
Fosshótel á Íslandi eru:
| Lind | Rauðarárstíg | Reykjavík | allt árið |
| Baron | Baronstíg | Reykjavík | allt árið |
| Húsavík | Ketilsbraut | Húsavík | allt árið |
| Dalvík | Dalvík | allt árið | |
| Reykholt | Reykholt | allt árið | |
| Mosfell | Hella | 01.06-31.08 | |
| Vatnajökull | Hornafjörður | 15.05-25.09 | |
| Skaftafell | Skatfafelli | 01.03-30.10 | |
| Laugar | Laugar | 01.06-19.08 |
Ráðlegt er að bóka með fyrirvara. Við pöntun skal koma fram að greitt verði með gistimiða, bókanir teknar eingöngu í gegn um síma eða á bokun@fosshotel.is
Nánari upplýsingar er að fá í síma 562 4000 eða á heimasíðunni http://www.fosshotel.is/is

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar er með gistimiða á Edduhótel sem eru 13 hringinn í kring um landið. Gestir sjá sjálfir um að bóka gistingu. Gistimiðar félagsins gilda fyrir tveggja manna herbergi m/handlaug (fullt verð er 11.400) verð til félagsmanna St.Rv. er 6.100,-
Viðbótarverð fyrir herbergi með baði er: Kr. 6.800 eða 2 Eddumiðar
Á Edduhótelunum er boðið upp á fjölbreyttar veitingar. Félagsmenn eru hvattir til að panta gistingu með góðum fyrirvara. Börn 5 ára og yngri fá frían mat ef þau panta það sama og foreldrar. Börn 6-12 ára greiða ½ gjald fyrir mat ef þau panta það sama og foreldrar.
Allar frekari upplýsingar veittar í síma 444 4000 og edda@hoteledda.is. Upplýsingar um hótelin má einnig fá á heimasíðu okkar www.hoteledda.is. Hægt er að kaupa hótelmiða á orlofsvef félagsinbs www.orlof.is/strv undir liðnum „miðasala". Miðarnir verða til sölu á vefnum frá miðjum maí. Hver félagsmaður getur keypt mest 7 miða.