Ný lög um fæðingar- og foreldraorlof tóku gildi 1. janúar 2005
Helstu breytingar taka til skilyrða fyrir greiðslum, lágmarkstíma, viðmiðunartímabils, hámarks, foreldris sem ekki er á innlendum vinnumarkaði á viðmiðunartímabilinu, ef um andlát foreldris er að ræða og leiðréttinga á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.
Ýmsar upplýsingar um fæðingarorlof og umsóknareyðublöð:
Réttarstaða hinna sem ekki kjósa að krossa í þennan reit er hins vegar önnur. Þeir teljast ekki félagsmenn á meðan fæðingarorlofi stendur og missa því rétt úr styrktar- og sjúkrasjóði, orlofssjóði og starfsmenntunarsjóði. Með öðrum orðum, til að halda sjóðsréttindum í fæðingarorlofi er nauðsynlegt að greiða stéttarfélagsgjald. Sé það greitt greiðir fjölskyldu- og styrktarsjóður (FOS) mótframlag til sjóða BSRB og sjóðfélagi heldur öllum sínum réttindum og heldur áfram að vinna sér inn réttindi meðan á fæðingarorlofi stendur. Engin lagaheimild er fyrir Tryggingastofnun ríkisins að draga stéttarfélagsgjöld óumbeðið af greiðslum í fæðingarorlofi. Því er óhjákvæmilegt að hafa spurningu á eyðublaðinu vegna fæðingarorlofsgreiðslu um hvort umsækjandi vilji vera áfram í sínu félagi og þar með greiða til þess félagsgjöld. Er því nauðsynlegt að minna félagsmenn á það að standa vörð um réttindi sín og félagsaðild og krossa í viðeigandi reit.
Hér að neðan er hægt að nálgast ýmsar upplýsingar um fæðingarorlof: