St.Rv. leggur nú, annað árið í röð, af stað með launakönnun fyrir félagsmenn og verður könnunin send félagsmönnum nú í febrúar. Einnig verður lögð fyrir félagsmenn könnunin „Stofnun ársins“ og verður valin fyrirmyndarstofnun úr stofnunum og fyrirtækjum borgarinnar og Akranesskaupstaðar.
Málþing BHM, BSRB og KÍ um samspil lífeyris og almannatrygginga verður haldið á Grand hótel Reykjavík 19. janúar nk. frá kl.13.00-16.00. Benedikt Jóhannesson frá Talnakönnun kynnir niðurstöður skýrslu sem hann vann að beiðni BHM, BSRB og KÍ um samspil lífeyrisgreiðslna frá lífeyrissjóðum og Tryggingastofnun. Málþingið er öllum opið og aðgangur er ókeypis. Þótt svo sé er fólk beðið um að skrá sig til þátttöku og er það gert hér eða í gegnum hnapp til hægri á forsíðu BSRB.
Á heimasíðu BSRB kemur fram að stjórnvöld undirbúa nú tilraunaverkefni sem felur í sér að stéttarfélög taka að sér hluta af þjónustu atvinnuleitenda. BSRB, KÍ og BHM vara eindregið við því að þessi leið verði farin og óttast að fyrirkomulagið verði til að skerða bolmagn Vinnumálastofnunar til að sinna starfi sínu.
Fulltrúaráðsfundur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, haldinn 10. janúar 2012, krefst leiðréttingar á launum. Í febrúar 2009 var Reykjavíkurborg fyrsti opinberi vinnuveitandinn til þess að skerða kjör starfsmanna sinna. Uppsögn var ýmist á fastlaunasamningum eða
|
BSRB stendur fyrir starfslokanámskeiði fyrir félagsmenn aðildarfélaga innan BSRB. Námskeiðið verður haldið dagana 31. janúar og 2. febrúar 2012 frá kl. 16.30 til kl. 19.00 báða dagana og er haldið í húsnæði BSRB Grettisgötu 89, 1. hæð. Námskeiðið er frítt og er einkum ætlað þeim sem eru að nálgast starfslok eða eru nýlega hættir störfum og er opið öllum félagmönnum aðildarfélaga innan BSRB og mökum þeirra. Skráning hefst 5. janúar 2012 á vef BSRB www.bsrb.is og í síma 525 8306. Sjá dagskrá undir nánar. |
![]() |
Jólaball St.Rv. og SFR sem haldið var 29. desember síðast liðinn var þrátt fyrir slæma færð vel sótt. Rúmlega 200 manns sungu og dönsuðu í kringum jólatré að Gullhömrum svo undir tók í sköflunum. Auðvitað kíktu jólasveinarnir við og skemmtu börnum og fullorðnum eins og meðfylgjandi myndir sýna. |
Fram kemur á á vef BSRB að bandalagið telur þá ákvörðun kjararáðs að draga til baka launalækkanir hjá ráðherrum, þingmönnum og embættismönnum einnig hljóta að vera fordæmisgefandi fyrir félagsmenn BSRB. Í kjölfar efnahagshrunsins missti fjöldi félagsmanna bandalagsins vinnuna og aðrir þurftu að taka á sig tímabundnar launalækkanir og skert starfshlutfall. Nú hefur kjararáð riðið á vaðið og leiðrétt þessar tímabundnu launalækkanir hjá ákveðnum hópi opinberra starfsmanna og krefst BSRB þess að leiðréttingar á kjörum félagsmanna bandalagsins muni einnig koma til framkvæmda hið fyrsta. Mun BSRB í kjölfarið fara fram á viðræður við fjármálaráðherra um hvernig staðið verði að þeim leiðréttingum. Sjá nánar
http://www.bsrb.is/um-bsrb/frettir/nr/2079/
Fundur fulltrúaráðs St.Rv. haldinn 15. desember 2011 leggur áherslu á mikilvægi þess afnotaréttar að landsvæði við Úlfljótsvatn, sem borgarráð gaf félaginu árið 1969, og stendur heilshugar að baki stjórn félagsins við að verja hann.
Stór hópur fulltrúa mætti á fund félagsins í dag. Meðal efnis sem farið var yfir á fundinum voru viðræður sem Orkuveitan og Reykjavíkurborg eiga í núna vegna fyrirhugaðrar sölu Orkuveitunnar á landi því við Úlfljótsvatn sem félagin var gefið til afnota á 40 ára afmæli félagsins árið 1966. Formaður upplýsti fulltrúaráðið um gang mála og áhyggjur félagsins af málinu og var samþykkt einróma ályktun fulltrúaráðs. Í lok fundar las Hallgrímur Helgason upp úr bók sinni Kona við 1000° og gerði mikla lukku.
Blað stéttarfélaganna sem gefið er út af St.Rv. og SFR er nú í prentun og ætti að berast félagsmönnum fyrir jól. Efni blaðsins er fjölbreytt að venju. Þar má m.a. finna viðtal við Gissur Pétursson forstjóra Vinnumálastofnunar, grein um nýsköpun í opinberum rekstri, jólabókahugleiðing eftir Úlfhildi Dagsdóttur, heimsókn til trúnaðarmanna á Landspítalanum, frásögn nokkurra matreiðslumanna um ferð þeirra til Finnlands og margt fleira. Með blaðinu fylgir vinnutímadagbók félagsins sem vonandi mun nýtist vel.