Fréttir
27.1.2012
Launakönnun og Stofnun ársins – munið að svara
St.Rv. leggur nú, annað árið í röð, af stað með launakönnun fyrir félagsmenn og verður könnunin send félagsmönnum nú í febrúar. Einnig verður lögð fyrir félagsmenn könnunin „Stofnun ársins“ og verður valin fyrirmyndarstofnun úr stofnunum og fyrirtækjum borgarinnar og Akranesskaupstaðar.
17.1.2012
Samspil lífeyris og almannatrygginga - þín framtíð
Málþing BHM, BSRB og KÍ um samspil lífeyris og almannatrygginga verður haldið á Grand hótel Reykjavík 19. janúar nk. frá kl.13.00-16.00. Benedikt Jóhannesson frá Talnakönnun kynnir niðurstöður skýrslu sem hann vann að beiðni BHM, BSRB og KÍ um samspil lífeyrisgreiðslna frá lífeyrissjóðum og Tryggingastofnun. Málþingið er öllum opið og aðgangur er ókeypis. Þótt svo sé er fólk beðið um að skrá sig til þátttöku og er það gert hér eða í gegnum hnapp til hægri á forsíðu BSRB.
|
Félagsmenn sem hafa verið starfandi síðustu 6 mánuði fyrir fæðingu barns og eru í starfi við upphaf fæðingarorlofs eiga rétt á fæðingarstyrk frá Styrktarsjóði BSRB. |
13.1.2012
BSRB, KÍ og BHM vara við tilfærslu á málefnum atvinnuleitenda
Á heimasíðu BSRB kemur fram að stjórnvöld undirbúa nú tilraunaverkefni sem felur í sér að stéttarfélög taka að sér hluta af þjónustu atvinnuleitenda. BSRB, KÍ og BHM vara eindregið við því að þessi leið verði farin og óttast að fyrirkomulagið verði til að skerða bolmagn Vinnumálastofnunar til að sinna starfi sínu.














