Beint á leiðarkerfi vefsins

Til gamans

Til gamans

Í skóla einn kom nýr nemandi í fyrsta bekk. Hún hét Guðrún Sigríður og kennarinn bað börnin að segja henni hvað þau hétu. Þegar  Embla, Natan, Þengill, Íris, Þöll, Evíta, Angela, Ottó, Ísir, Sól, Heikir, og Virgill voru búin að segja nöfnin sín, rétti eitt þeirra upp hönd og sagði: Kennari, hvenær fáum við svona alvöru fullorðinsnöfn?

Félag stuðningsfulltrúa í grunnskólum boðar stuðningsfulltrúa í Reykjavík og á Akranesi til fræðslufundar þann 3. nóvember  kl. 20:00 að Grettisgötu 89 í húsi Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.

Til gamans....

Lítil saga úr skólanum
Ungur nemandi var að lesa og í bókinni fékk sögupersónan hosur  til að fara í. Þar sem nemandinn vissi ekki hvað hosur voru fékk hann útskýringu á orðinu. Las hann nú áfram þar til kom að orðinu votur og var þá spurður hvort hann vissi hvað það væri að vera votur, það vissi nemandinn ekki heldur og þegar búið var að segja honum það sagði hann; af hverju er ég ekki látinn lesa bækur á íslensku?




Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta Introduction in English